Wikiorðabók:Málkassi
Hér getur maður séð hverning nota skal Málkassa-X á notandasíðunni manns. Slíkur málkassi er notaður til að sýna hæfni manns í tungumálum.
- Byrjað skal á tveimur slaufusvigum. Þeir tákna byrjun sniðs ({{).
- Næst skrifar maður nafn sniðsins. Í þessu tilfelli yrði það Málkassi-X.
- Þetta snið hefur eigindi. Þau koma næst á eftir nafninu og eru aðgreind frá nafninu með pípu (|). Hvert eigindi er aðskilt með pípu.
- Eftir að öll viðeigandi eigindi eru kominn endar sniðið á slaufusvigum (}}).
Dæmi:
| ||
| ||
| ||
|
{{Málkassi-X|is|en-3|da-2|de-4}} Þessi kassi segir það að íslenska sé móðurmál manns, að maður hafi yfirburðarkunnáttu á ensku, miðlungsþekkingu á dönsku og þýsku líkt og móðurmælandi.
- Hægt er að hafa allt að 100 snið í sniðinu Málkassi-X en ekki er æskilegt að hafa allt of mörg tungumálasnið í kassanum. Það má raða tungumálunum í hvaða röð sem er.
- „Wikipedia:Málkassi“ er grein sem finna má á Wikipediu.