einfaldur
Íslenska
Allar aðrar lýsingarorðsbeygingar sjá „einfaldur/lýsingarorðsbeyging“ | |||
Eintala | |||
Nefnifall | Frumstig | Miðstig | Efsta stig |
(karlkyn) | einfaldur | einfaldari | einfaldastur |
(kvenkyn) | einföld | einfaldari | einföldust |
(hvorugkyn) | einfalt | einfaldara | einfaldast |
Fleirtala | |||
Nefnifall | Frumstig | Miðstig | Efsta stig |
(karlkyn) | einfaldir | einfaldari | einfaldastir |
(kvenkyn) | einfaldar | einfaldari | einfaldastar |
(hvorugkyn) | einföld | einfaldari | einföldust |
Lýsingarorð
einfaldur
- [1] auðveldur, óbrotinn, vandalaus
- [2] ekki tvöfaldur/samsettur
- [3] barnalegur, grandalaus, heimskur
- [4] fornt: dyggur, tryggur
- Afleiddar merkingar
- [1] einfaldlega
- Sjá einnig, samanber
- Dæmi
- [1] „Sönnunin er fallega einföld: ef maður ímyndar sér að einhver segist búa yfir lista með öllum prímtölum, getur maður ætíð sannað að það skorti eina. Maður tekur nefnilega allar prímtölur listans, margfaldar þær saman og bætir 1 við.“ (Lifandi vísindi : Örðugustu gátur stærðfræðinnar)
- [1] „Sókrates var ekki jafn einfaldur maður og fyrsta ímyndin um hann ber vitni um.“ (Vísindavefurinn : Ef Sókrates væri uppi á okkar tímum, væri hann þá ekki bara iðjuleysingi og ónytjungur?)
- [2] „Einfaldur barskammtur (30 ml) af þessum tegundum (u.þ.b. 40% að rúmmáli) jafngildir um 9,5 g af hreinu etanóli.“ (Doktor.is : Etanól (alkóhól))
- [3] „Um leið sýndi hann Sigríði líka, svo ótvírætt og skilmerkilega, að hann elskaði hana, að Sigríður hefði verið einfalt barn ef hún hefði ekki skilið hvað klukkan prestsins sló.“ (Snerpa.is : Gamalt og nýtt, eftir Þorgils gjallanda)
- [4] „Úlfur Óspaksson var með Haraldi konungi í miklum kærleikum. Hann var hinn vitrasti maður, snjallur í máli, skörungur mikill, tryggur og einfaldur.“ (Snerpa.is : Haralds saga sigurðarsonar)
Þýðingar
[breyta]
þýðingar
- Tilvísun
Icelandic Online Dictionary and Readings „einfaldur “