Íslenska


Fallbeyging orðsins „kvarki“
Eintala Fleirtala
án greinis með greini án greinis með greini
Nefnifall kvarki kvarkinn kvarkar kvarkarnir
Þolfall kvarka kvarkann kvarka kvarkana
Þágufall kvarka kvarkanum kvörkum kvörkunum
Eignarfall kvarka kvarkans kvarka kvarkanna
Önnur orð með sömu fallbeygingu

Nafnorð

kvarki (karlkyn); veik beyging

[1] Kvarkar eru agnir sem mynda róteindir og nifteindir og eru annað tveggja agnarefna sem mynda efnið (hitt efnið er létteindir (lepton). Til eru sex gerðir af kvörkum. Þær eru upp (u), niður (d), sérstaða (s), þokki (c), toppur (t) og botn (b). Kvarkar eru einu frumeindirnar sem allir fjórir frumkraftarnir verka á.
Orðsifjafræði
Murray Gell-Mann fékk orðið kvarki lánað úr bók James Joyce, Finnegans Wake, en í henni eru sjávarfuglar sem gefa frá sér „three quarks,“ þ.e.a.s. körruðu þrisvar sinnum, og er orðið líklega myndað þannig að það er samrunni borgarnafnsins CorkMunster) og ensku sagnarinnar „quack“, sem haft er um það hljóð sem endur gefa frá sér á ensku, sbr. íslensku sögnina að „karra“ sem haft er um það þegar endur garga.

Þýðingar

Tilvísun

Kvarki er grein sem finna má á Wikipediu.
Íðorðabankinn322226